Byggðamál efst á baugi í kosningunum í vor
13. mars 2007

Byggðamál verða stærsta kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar   2007. Neikvæð byggðaþróun í stórum hluta kjördæmisins er fólki mikið áhyggjuefni og ekki að ástæðulausu. Þessi þróun hefur staðið í áratugi og ástæður þess eru margþættar. Hver einasti einstaklingur er afar mikilvægur og mikið áfall fyrir  byggðarlögin þegar þeim fækkar. Fækkun eykur álag á þá sem eftir eru og grundvöllur margskonar þjónustu fjarar út, samkeppnishæfnin byggðarlaga minnkar   og svo frv. Ekki má heldur gleyma andlega þættinum hjá íbúum, en að horfa á eftir æskuvinum, félögum og fjölskyldumeðlimum flytja burt á fjarlægar slóðir snertir hjartaræturnar tilfinnanlega. Þetta er þróun sem erfitt er að átta sig á hvernig á að stöðva og snúa við. Eitt er víst að þessi mál verða ekki leyst á einni nóttu heldur er um langtímaverkefni að ræða þar sem samstaða og samvinna margra aðila þarf að koma til.

Í leik, námi og starfi hef ég fengið þann heiður að umgangast fólk víðsvegar af landinu. Sammerkt með miklum meirihluta þessa fólks eru sterk tilfinningabönd sem borin eru til æskuslóðanna og þær ævinlega kallaðar „heima“ þó að langur tími hafi liðið frá brotthvarfi. Þegar umræðurnar snúast um heimabyggðirnar og spurningunni kastað fram hvort til greina kæmi að flytja aftur heim er svarið jákvætt. Ástæður þess að flytja heim eru oftast einum rómi. Í því sambandi má helst nefna öryggis- og tengslanetið. Að geta umgengist stórfjölskyldu sína og alið upp börn sín í faðmi hennar er fólki afar mikilvægt. Samkenndin sem ríkir í minni byggðarlögum þar sem allir þekkja alla er eftirsóknarverð. Einnig má nefna aðra þætti eins og frasann um stressið en í samanburði kemur landsbyggðin mun betur út í mati á streitustigi. Saman vinna þessir mismunandi þættir og margir aðrir að því að einstaklingar telja lífsgæði sín og hamingju betur uppfyllta á æskuslóðunum.  

Forsendur þess að flytja til baka eru hins vegar mismunandi og geta verið mjög einstaklingsbundnar. Í komandi greinum mun ég fara yfir nokkur atriði í þeim efnum. Hægt verður m.a. að sjá greinarnar á heimasíðu minni www.valdimar.is ásamt öðru efni sem tengist stjórnmálaumræðunni núna í aðdraganda kosninga.

Í lokin langar mig að birta hér eina vísu sem Hjalti Sigurjónsson bóndi í Raftholti setti saman og á ansi vel við þessa umræðu.

Þó á æviskeiði verði skil

skal þó á það minna

Að hugurinn ætíð leitar til

æskuslóða sinna



Pistlar
11. maí 2007
Atvinna er grundvöllur menntunar.
Framsóknarflokkurinn fór í ríkisstjórn árið 1995 með loforð um að ráðast gegn atvinnuleysi og skapa
Lesa pistil
10. maí 2007
Hvað hafa Vinstri grænir að fela fyrir bændum?
Það þarf manndóm til að segja skoðun sína umbúðalaust, sérstaklega ef áætla má að hún sé andstæð rík
Lesa pistil
09. maí 2007
HÖFNUM EIGNAUPPTÖKU!
Eitt atriði hefur ekki fengið mikla umfjöllun en það er umræðan um eignarhald á jörðum utan þjóðlend
Lesa pistil
09. maí 2007
Á að nota Lánasjóð íslenskra námsmanna í þróun byggðamála?
Ég vil halda landinu í byggð og að leitað verði allra leiða til að svo megi verða. Það þarf hins veg
Lesa pistil