Atvinna er grundvöllur menntunar.
11. maí 2007

Oft er rætt um hvort kom á undan eggið eða hænan. Þetta á einnig við um samspil menntunar og atvinnumála. Það er viðurkennt að þegar atvinnuleysi ríkir þá myndast ekki hvati til að afla sér menntunar og aðsókn í skóla minnkar til muna. Ef það eru ekki til staðar atvinnutækifæri þá sér fólk ekki hag í að afla sér aukinnar menntunar. Ef þetta samspil er hugsað lengra þá má segja að grunnurinn að fjölbreyttri menntun sé fjölbreytt atvinnulíf.

Framsóknarflokkurinn fór í ríkisstjórn árið 1995 með loforð um að ráðast gegn atvinnuleysi og skapa 12.000 ný störf. Við þetta var staðið við og í kjölfarið myndaðist grundvöllur til að gera stórsókn í menntamálum. Fjölbreytnin í menntamálum og möguleikar þeirra sem ljúka háskólanámi hafa aldrei verið meiri.

Í Norðvesturkjördæmi hefur framboð á framhaldsskólamenntun verið stóraukið. Í kjördæminu eru öflug háskólasamfélög og hugmyndir Framsóknarflokksins eru að auka þar bæði fjölbreytni og framboð. Undirstaða þess að hægt sé að halda áfram að byggja upp menntakerfi í kjördæminu ræðst af því að hér verði öflug hagstjórn aðild Framsóknarflokksins sem haldi áfram að stuðla að fullri atvinnu og sterkri efnahagsstjórn.

Framsóknarflokkurinn hefur ávalt staðið fyrir framförum og framþróun í atvinnumálum. Við höfum staðið fyrir stórhuga breytingum sem leyst hafa úr læðingi mikinn mannauð og skapað okkur miklar tekjur til að standa straum af öflugu velferðarkerfi.

Framsóknarflokkurinn boðar áframhaldandi sókn á öllum sviðum þjóðlífsins. Við erum samvinnufólkið sem styður umbætur, framþróun og framfarir. Með samvinnu og samhug vinnum við að því að byggja betra samfélag.

Atkvæði greitt Framsóknarflokknum í Alþingiskosningunum á morgun stuðlar að áframhaldandi sókn og að hér verði áfram sterkt efnahagslíf, jöfn og fjölbreytt menntunartækifæri  og öflugt velferðarkerfi. Þannig þjóðfélagi viljum við búa í.



Pistlar
10. maí 2007
Hvað hafa Vinstri grænir að fela fyrir bændum?
Það þarf manndóm til að segja skoðun sína umbúðalaust, sérstaklega ef áætla má að hún sé andstæð rík
Lesa pistil
09. maí 2007
HÖFNUM EIGNAUPPTÖKU!
Eitt atriði hefur ekki fengið mikla umfjöllun en það er umræðan um eignarhald á jörðum utan þjóðlend
Lesa pistil
09. maí 2007
Á að nota Lánasjóð íslenskra námsmanna í þróun byggðamála?
Ég vil halda landinu í byggð og að leitað verði allra leiða til að svo megi verða. Það þarf hins veg
Lesa pistil