Á að nota Lánasjóð íslenskra námsmanna í þróun byggðamála?
09. maí 2007

Á síðustu misserum hafa komið fram margar hugmyndir hvernig hægt er að létta afborganir til þeirra sem lokið hafa námi og eru að hefja störf. Upp komu hugmyndir hjá Framsóknarflokknum fyrir kosningar árið 2003 að breyta hluta af lánum í styrk ef námi er lokið á tilskyldum tíma. Þessar hugmyndir má nú einnig finna hjá Samfylkingu. Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort ekki megi ganga en lengra og að veita þeim sem setjast að á landsbyggðinni að námi loknu enn frekari ívilnanir í formi léttari endurgreiðslu af námslánum. Með því að fara þá leið myndast hvati sem stuðlar að hærra menntunarstigi, aukinni nýsköpun og   aukinni verðmætasköpun á landsbyggðinni.

Hagfræðin kennir okkur þó að verði leið sem þessi valin komi atvinnurekendur til með að borga lægri laun fyrir sömu störf til þeirra sem njóta ívilnunar sem þessarar. Það á þó ekki við innan opinbera geirans en þar eiga að vera sömu laun fyrir sömu störf óháð búsetu, kyni og svo frv. Aftur á móti vegur það þyngra að mínu mati að þeir sem stunda eigin rekstur njóta þessarar leiðar til fullnustu. Einnig er hægt að gagnrýna með þeim rökum að þetta skekki samkeppnisstöðu en að mínu mati er hægt að hrekja þau rök og kalla þennan mun sem myndast frekar jöfnun á samkeppnisstöðu til handa atvinnurekstri á landsbyggðinni.

Að lokum vaknar alltaf sú spurning hvort við séum tilbúin að greiða götu þeirra sem búa á landsbyggðinni? Ég vil halda landinu í byggð og að leitað verði allra leiða til að svo megi verða. Það þarf hins vegar að gera á skynsamlegan hátt til að um það skapist sátt. Að nota Lánasjóðinn í þróun byggðamála kemur því vel til greina að minni hálfu.



Pistlar
11. maí 2007
Atvinna er grundvöllur menntunar.
Framsóknarflokkurinn fór í ríkisstjórn árið 1995 með loforð um að ráðast gegn atvinnuleysi og skapa
Lesa pistil
10. maí 2007
Hvað hafa Vinstri grænir að fela fyrir bændum?
Það þarf manndóm til að segja skoðun sína umbúðalaust, sérstaklega ef áætla má að hún sé andstæð rík
Lesa pistil
09. maí 2007
HÖFNUM EIGNAUPPTÖKU!
Eitt atriði hefur ekki fengið mikla umfjöllun en það er umræðan um eignarhald á jörðum utan þjóðlend
Lesa pistil