Ég heiti Valdimar
Sigurjónsson, fæddist á Akranesi að kvöldlagi föstudagsins 13. október 1972 og
ólst upp á Glitstöðum í Norðurárdal, Borgarbyggð.
Ég er yngstur þriggja
systkina en systur mínar heita Guðrún og Katrín.
Árið 2005 flutti ég með
annan fótinn til Hafnarfjarðar og alkominn með lögheimili
þangað um mitt ár 2007.
Maki minn heitir Sigrún
Guðmundsdóttir fædd og uppalin í Keflavík. Sigrún er hárgreiðslumeistari og var
lengi með stofu í Grindavík en vinnur núna á Fagfólk á Strandgötunni í
Hafnarfirði.
Ég á einn son Sigurjón
Daða, fæddan 1994, hann er í Setbergsskóla. Sigrún á tvo stráka
Bjarna Rúnar sem starfar sem kokkur í Freysnesi og Ástþór Erni sem er að ljúka
námi í Flensborg.
Í byrjun árs 2010
stofnaði ég fyrirtækið Dekkjasalan sem staðsett er í Dalshrauni í Hafnarfirði.
Grunnskólaárunum varði
ég á Varmalandi í Stafholtstungum og var svo heppinn að vera á fyrsta árinu sem
10. bekkur var kenndur þar. Á þessum tíma var Varmaland heimavistarskóli þannig
að mikið var um fjör og gleði hjá okkur krökkunum fyrir utan hefðbundinn
skólatíma. Árið 1987 fluttist ég til Reykjavíkur og stundaði nám við
Menntaskólann við Sund. Þaðan útskrifaðist ég sem stúdent árið 1994 en sá langi
tími skýrist af því að ég tók tveggja ára hlé þar sem ég fór sem skiptinemi til
Ástralíu. Frá 1994 starfaði ég sem verktaki við járnabindingar hjá ýmsum
fyrirtækjum en árið 1999 byrjaði ég hjá Mótás hf. og vann þar til ársins
2003 eða þar til ég fluttist aftur heim að Glitstöðum og hóf nám við Viðskiptaháskólann
á Bifröst. Árið 2006 útskrifaðist ég með BSc próf í viðskiptalögfræði.
Foreldrar mínir heita
Sigurjón Valdimarsson frá Hreiðri í Holtum, Rangárvallasýslu og Auður
Eiríksdóttir fædd og uppalin á Glitstöðum.
Föðuramma mín hét Guðrún Albertsdóttir frá Neðsta-bæ í Norðurárdal,
Húnavatnssýslu en föðurafi minn og nafni minn Valdimar Sigurjónsson fæddist og
ólst upp í Hreiðri.
Móðuramma mín hét Katrín Jónsdóttir og fæddist á Hægindi í
Reykholtsdal en fluttist síðan að Sigmundarstöðum í Þverárhlíð. Móðurafi minn
hét Eiríkur Þorsteinsson fæddur á Hamri í Þverárhlíð þar sem hann bjó til
ársins 1928 að hann og amma keyptu Glitstaðina og stunduðu þar búskap sinn þar
til mamma og pabbi tóku við.