Fréttir
27. febrúar 2009
Með lögheimili í bílnum!
Nú er prófkjörsslagurinn að byrja af fullum þunga. Fyrsti fundurinn er á morgun á Akranesi og svo í Borgarnesi. Næstu vikuna mun ég verja í ferðalög milli fundarstaða ásamt heimsóknum til framsóknarfólks í kjördæminu.
 
Þetta eru miklar vegalengdir og vona ég að' veðurguðirnir eigi eftir að sjá aumur á okkur frambjóðendunum. Fleiri fundir hafa nú bæst við en miðvikudaginn 4. mars verður fundur á Hólmavík og svo föstudaginn 6. mars á Blönduósi.
 
Ég kemst ekki á fundinn á Ísafirði þar sem verið er að jarða nágrannakonu mína hana Önnu á Brekku á sama tíma. Aftur á móti er verið að skipuleggja fund þriðjudaginn 3. mars til að við sem ekki komumst á laugardagsfundinn getum hitt fólkið okkar fyrir vestan.
25. febrúar 2009
Bloggið mitt!
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég með bloggsíðu á moggablogginu þar sem ég bregst við fréttum og læt svolítið gamminn geysa. Netfangið þar er www.valdisig.blog.is og hægt er að smella á linkinn til að skoða það.
25. febrúar 2009
Mogginn gefur mér lítinn gaum!
Margir hafa hringt í mig og spurt af hverju ég var ekki með í frétt um frambjóðendur í Morgunblaðinu. en þar voru allir taldir upp sem sækjast eftir að leiða framboðslistann í NV.
 
Ég get því miður ekki svarað þeirri spurningu og hef reynt að hafa samband við moggann til að fá skýringar. Vonandi bætir hann úr þessu innan tíðar.
 
Fyrir þá sem hafa tekið þessu sem einhverju bakslagi í baráttu minni þá er það af og frá. Ég bara eflist ef eitthvað er.......
24. febrúar 2009
Dagskrá framboðsfunda
Nú er búið að raða niður framboðsfundunum þar sem við frambjóðendur látum ljós okkar skína. Hér eftirfarandi er skipulagið :
 
•    Ísafjörður, laugardaginn 28. febrúar kl. 14:00 á Hótel Ísafirði
•    Akranes, sunnudaginn  1. mars kl. 12:00 á Skrúðgarðinum
•    Borgarnes, sunnudaginn  1. mars kl: 16:00 á Landnámssetrinu
•    Stykkishólmur, mánudaginn   2. mars kl: 20:30 í Verkalýðshúsinu
•    Patreksfjörður, fimmtudaginn 5. mars kl. 20:30 í anddyri félagsheimilisins
•    Hrútafjörður, laugardaginn  7. mars kl: 11:00 að Staðarflöt
•    Sauðárkrókur, laugardaginn  7. mars kl. 16:00 í Framsóknarhúsinu
 
Fundirnir eru opnir fyrir alla félagsmenn og vonandi sjáum við sem flesta. Síðast var mikil þátttaka í póstkosningunni og greinilegt að framsóknarfólk í kjördæminu lætur sér varða hvernig raðast á listann. Vonandi verður þátttakan jafnmikil eða betri núna enda mikilvægt að sem flestir nýti lýðræðislegan rétt sinn til að segja skoðun sína.
 
Ég hlakka til að hitta félagsmenn og kynna mig og mína afstöðu til málefna samfélagsins.
 
Sjáumst!
20. febrúar 2009
Fjör í framboðsmálum
Nú eru að hellast inn framboðin eitt af öðru. Í upphafi leit út fyrir að það yrði vöntun á konum á framboðslistann en nú hefur aldeilis ræst úr því, fjórar konur komnar í framboð um tvö efstu sætin. Það er gleðiefni þegar margir sækjast eftir kjöri og kjósendur í póstkosningunni hafa úr nógu að velja.
 
Ég hlakka mjög til að takast á við samherjana um sæti á listanum og eflist til muna við að heyra um ný nöfn í framboði. Það verður gaman að fá að kynnast nýju fólki og heyra þeirra innlegg í umræðuna.
 
Framboðsfundirnir verða örugglega mjög spennandi en nú er verið að skipuleggja þá af fullum krafti. Ég vona að vel takist til og við sjáum sem flest Framsóknarfólk á þeim fundum. Þegar fundaskipulagið verður klárt birti ég það hér á síðunni þannig að það fari ekki fram hjá neinum hvar og hvenær við erum á svæðinu.
16. febrúar 2009
Framboðsyfirlýsing
Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í NV kjördæmi nú á laugardaginn gaf ég út að ég myndi sækjast eftir 1. - 2. sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Eftirfarandi yfirlýsingu sendi ég svo á fjölmiðla nú í morgun:
 
 
Framboðsyfirlýsing
 
Ég undirritaður, Valdimar Sigurjónsson, hef ákveðið að sækjast eftir 1. eða 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningar 2009.

 

Íslenskt samfélag gengur nú í gegnum erfiðleika sem eiga eftir að vera skráðir í sögu landsins til allrar framtíðar. Verkefni okkar sem nú byggjum Ísland er að sjá til þess að þessi kafli sögu okkar verði skrifaður á þann hátt að hér hafi verið tekið á málum af skynsemi, dugnaði og stórhug.

 

Hlutverk stjórnmálanna er að hafa frumkvæði og vilja til að leiða það verkefni. Með upplýstri umræðu, gagnsæjum vinnubrögðum og heiðarleika er hægt að vinna inn það traust sem þarf til að við sem þjóð náum vopnum okkar á nýjan leik.

 

Sú endurnýjun sem hefur orðið í Framsóknarflokknum, bæði hvað varðar forystu og málefni sýnir á ótvíræðan hátt að flokkurinn gengur í takt við íslenska þjóð og hlýðir ákalli um breytt og betri vinnubrögð.

 

Grundvallarhugsjónir Framsóknar, byggðar á samvinnu og jöfnuði eru samhljóma minni hugmyndafræði. Saman breytum við rétt og byggjum betra samfélag.

 

Ég er 36 ára, fæddur og uppalin á Glitstöðum í Borgarbyggð. Árið 2006 útskrifaðist ég sem Viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst.

 

Fyrir alþingiskosningarnar 2007 skipaði ég 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi. Í þeirri kosningabaráttu lagði ég mig fram við kynna mér helstu þætti atvinnu- og mannlífs í kjördæminu, sem og landinu öllu. Sú reynsla og þekking sem ég öðlaðist þar sannfærir mig um að sá kraftur, þekking og elja sem býr í íslenskri þjóð gerir okkur kleift að yfirstíga þá erfiðleika sem nú steðja að.

 

Úrlausnarefni næstu missera eru fjölbreytt og kalla á frjóa hugsun, frumkvæði og nýjar framsýnar aðferðir. Ég tel mig hafa frumkvæði og þann kraft og vilja sem þarf til þess að verða í forystusveit Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi og vonast til þess að hljóta traust flokksmanna í póstkosningu nú í byrjun mars.

 

Virðingarfyllst,

 

Valdimar Sigurjónsson

 

Allar frekari upplýsingar

GSM: 8205205

e-mail: valdimar@valdimar.is

16. febrúar 2009
Póstkosning ákveðin hjá Framsókn í NV
Á kjördæmisþingi hjá Framsókn í Norðvesturkjördæmi var samþykkt nær samhljóða að efna ætti til póstkosningar til að velja á framboðslistann nú fyrir alþingiskosningarnar. Á annað hundrað fulltrúar mættu á þingið og spunnust skemmtilegar umræður og greinilegt er að mikill hugur er í framsóknarfólki.
01. janúar 2008
valdisig.blog.is
www.valdisig.blog.is er síða sem ég ætla að nota núna í framtíðinni til að blogga á. Ég þakka öllum sem hafa séð af tíma sínum til að lesa það sem ég hef skrifað hér og vona að eitthvað lestrarhæft birtist öðru hverju á hinum staðnum.
Ef þið viljið hafa samband þá er það ekkert mál í gegnum þessa síðu og væri gaman að heyra sem mest og sem oftast frá ykkur.
01. janúar 2008
Gleðilegt ár!

Ég óska öllum gleðilegs árs og þakka fyrir það liðna. Árið sem var að líða var mjög viðburðaríkt hjá mér eins og mörgum öðrum. Hæst bar kosningabaráttan og kosningarnar i vor. Það var mjög lærdómsríkt að taka þátt í þeirri baráttu. Að fá að kynnast svona mikið af fólki og setja sig inn í málefni kjördæmisins og samfélagsins var mikil lífsreynsla sem á eftir að skila sér í framtíðinni í aukinni víðsýni og þekkingu. Ég þakka öllum þeim sem lögðu mér og okkur lið í baráttunni og þakka þeim fjöldamörgu vinum sem ég eignaðist víðsvegar um kjördæmið fyrir ánægjulega samveru á árinu, vonandi verða þær sem flestar í framtíðinni. 

30. maí 2007
Hlutirnir gerast hratt hjá Framsókn
Það er mikið um að vera þessa dagana hjá Framsóknarflokknum. Formaðurinn hættur, varaformaðurinn tekinn við, nýr varaformaður á leiðinni. Það verður gaman að sjá hvernig þetta mun ganga fyrir sig. Kannski verður einhver hvellur...hver veit. Nú þarf unga fólkið að stíga fram af fullum þunga og taka meiri þátt í að draga vagninn. Það er allavega nóg af ungu og frambærilegu fólki í framsókn sem á eftir að láta mikið af sér kveða í framtíðinni. Spurningin er bara hvenær kynslóðaskiptin eiga sér stað og með hvaða hætti. Ég er þeirrar skoðunar...því fyrr því betra...Allavega er mikil pressa á þingflokknum okkar að standa sig bæði í andstöðunni og uppbyggingunni.
30. maí 2007
Eru umræðurnar um hvalveiðar það sem koma skal hjá ríkisstjórninni?

Einn ráðherran er með, annar á móti, þriðji með og fjórði tvístígandi......og svo frv. Sama gildir um þingflokkana, þar eru skiptar skoðanir og mismunandi loforð voru gefin í kosningabaráttunni.

Þetta verður spennandi samstarf og greinilega ólíkt frá samstarfi X-B og X-D að því leiti að menn hlaupa nú í fjölmiðla fyrst og ræða málin síðan innan stjórnarflokkanna.

24. maí 2007
Þjórsárver eða ekki Þjórsárver

Ef ætlun hinnar nýju ríkisstjórnar er að klára deilumál í sambandi við Norðlingaölduveitu og Þjórsárver í eitt skipti fyrir öll þá hefði verið hægt að orða það með mun skýrari hætti í stjórnarsáttmálanum. T.d. Hætt verði við gerð Norðlingaölduveitu.

Setningin upp úr stjórnarsáttmálanum er hinsvegar eftirfarandi:

"Stækkun friðlandsins í þjórsárverum verði tryggt þannig að það nái yfir hið sérstaka votlendi hveranna"

Loðnara getur það ekki verið og einsýnt er að hin nýja ríkisstjórn vill halda öllu opnu í virkjanamálum sem og öðru. Það er mikið talað um það hjá stjórnarliðum að nýja ríkisstjórnin hafi burði og kjark til að koma málum á dagskrá.  Svona loðin stefna er ekki til merkis um mikinn kjark. Það hefði verið nær að koma skýrt fram og segja bara Þjórsárver eða ekki Þjórsárver.

24. maí 2007
Stjórnarsáttmálinn opinn í báða enda

Eðli stjórnarsáttmála er að vera dálítið opnir í báða enda og þar er ætíð að finna mörg faguryrði og stóryrði um að hverju skuli stefnt. Stjórnarsáttmáli X-D og X-S er þar engin undantekning. Það sem kemur mér samt á óvart er hvað lítið er þar sem hönd á festir. Þarna er farið inn á flest svið þjóðlífsins og allt á að bæta og efla en lítið um nánari skilgreiningar. Nokkuð mörg atriði vöktu athygli mína og þá sérstaklega hvað Samfylkingin hefur gefið gríðarlegan afslátt af sinni stefnu, allavega hvað varðar þau stóru orð sem komu fram í kosningabaráttunni. Það verður stórt og spennandi verkefni að vera í stjórnarandstöðu enda gefur stjórnarsáttmálinn tilefni til margra ágreiningsefna. Það eru fögur fyrirheit um sátt og samlyndi en ekki er ég viss um að þjóðin gleypi við öllu því sem að kemur frá þessari ríkisstjórn möglunarlaust. Það skyldi þó ekki vera að mikið ósætti eigi eftir að einkenna þjóðlífið á næstu misserum?

23. maí 2007
Kannski verður það ÞÚ

Inngrip auðvaldsins í kosningabaráttuna fyrir alþingiskosningarnar núna í vor er grafalvarlegt mál. Núna í kjölfarið er auðvelt að gleyma sér í því að benda á að Framsóknarflokkurin sé tapsár og sé að benda á að þessi aðför sem beindist að honum sé eina ástæða þess að illa fór. Það eru margar ástæður fyrir slæmri útreið flokksins í kosningunum og mikil vinna framundan í að byggja upp flokkinnn. En það má ekki líta á inngrip fjölmiðla á vegum Baugs og auglýsingu Jóhannesar eingöngu í því ljósi. Hverjir verða fyrir barðinu á auðvaldinu næst? Verður það kannski Samfylkingin? Hvað ef nýjir ráðherrar á þeim bæ láta sér detta í hug að að koma fram með auknar reglur t.d. um hringamyndun eða auknar reglur í sambandi við samkeppnismál? Verður þá útgefið blað sem ætlað er að draga úr trúverðuðleika þeirra? Getur verið að ótti við að styggja ekki Baug geri að verkum að ráðherrar veigri sér við að setja eðlilegar reglur á sviði viðskiptalífsins?

Eitt er víst að þetta ingrip sem átti sér stað vekur fleiri spurningar en það svarar. Það væri allavega ráðlegt að taka Framsóknarflokkinn og Baug út úr þessari umræðu og líta á heildarmyndina. Kannski verður það ÞÚ sem lendir næst undir hælnum á auðvaldinu. Hvað þá?

22. maí 2007
"Nú sitjum við uppi með þessa ríkisstjórn..."
Þessi orð sem Jón Bjarnason hinn mæti þingmaður Vinstri Grænna hafði ítrekað frammi í kosningabaráttunni hafa öðlast nýja merkingu...... þarf varla að rökstyðja það nánar. :-)
22. maí 2007
"Baugsstjórnin"
Sjálfstæðisflokkur barði á putta Jóhannesar í Bónus með því að skipa Björn Bjarnason sem Dómsmálaráðherra. Með því móti hafa sjallarnir líka slegið örlítið á þann orðróm að nafn ríkisstjórnarinar skuli vera "Baugsstjórn". Annars hefur það nafn festst við stjórnina nú þegar og allar aðgerðir hennar verða skoðaðar í því ljósi. Miðað við þær áherslur sem ég hef hlerað þá eru áherslunar ansi mikið til hægri og frjálshyggjan í fyrirrúmi. Annars býð ég spenntur eftir stjórnarsáttmálanum en það verður gaman að sjá hvað flokkarnir hafa bakkað mikið til að ná samkomulagi.
22. maí 2007
Ný ríkisstjórn
Nú er búið að tilkynna ráðherralista í næstu ríkisstjórn. Sameinuð voru landbúnaðarráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti þannig að það má segja að tvö ráðuneyti séu á í höndum Einars K. Guðfinnssonar sem er eini ráðherrann úr Norðvesturkjördæmi.
Athygli vekur einnig að Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti sé í höndum tveggja ráðherra. Skipting ráðuneyta er því að Sjálfstæðisflokkurin er með 7 ráðuneyti og Samfylking með 5 ef miðað er við eldra fyrirkomulag. Samfylking ber sér á brjóst fyrir að fylgja í kjölfar Framsóknar að vera með jafnt kynjahlutfall 3 - 3.......það er ekki merkileg ríkisstjórn ef það er aðalmálið.......Hlakka til að sjá málefnasamninginn en þar verða örugglega margt sem Samfylkingin þarf að éta ofan í sig. Guðlaugur Þór boðaði allavega strax í fyrsta viðtali breytingar í rekstri heilbrigðiskerfisins í átt til einkavæðingar. Það hefði Framsókn aldrei samþykkt.
15. maí 2007
Þakkir
Ég ætla hér með að þakka kjósendum Framsóknarflokksins fyrir veittan stuðning í Alþingiskosningunum.
Framsóknarfélögum og öðru stuðningsfólki sem unnu með okkur í baráttunni þakka ég fyrir mikla fórnfýsi og skemmtilegt samstarf. Ykkar verk verða seint fullmetin. Takk!
Ég þakka fjölskyldu, vinum og velunnurum fyrir að standa við bakið á mér og hvetja til dáða.
Ég þakka meðframbjóðendum fyrir ánægjulegt og gleðilegt samstarf.
Ég þakka mótframbjóðendum fyrir drengilega og skemmtilega baráttu.
Íbúum Norðvesturskjördæmis þakka ég fyrir ánægjuleg kynni og mikla gestrisni, bæði heima og á vinnustöðum.
 
Aðrir sem ekki falla undir áðurnefndar skýringar þakka ég líka fyrir ánægjuleg kynni og skemmtilega kosningabaráttu.
 
Takk og aftur takk!
12. maí 2007
Kjördagur
Nú er runninn upp kjördagur. Nú talar þjóðin og segir sína skoðun. Ég vona að sem flestir nýti kosningaréttinn. Þetta eru ekki sjálfgefin réttindi og ég bendi á þá staðreynd að minnihluti jarðarbúa búa við að fá að kjósa sér fulltrúa á lýðræðislegan hátt. Þessum réttindum fylgja líka skyldur sem fólgnar eru í að taka ábyrga og meðvitaða ákvörðun. Ég vona að allir komi sáttir að kjörborðinu og gangi sáttir frá því. Til hamingju með daginn.
 
Fyrir þá sem eru óákveðnir bendi ég á að kynna sér málin á www.framsokn.is
11. maí 2007
Vísnaþáttur
Bjarni Valtýr Guðjónsson hinn síungi sveitahöfðingi úr Hraunhreppnum hefur  verið duglegur að vanda í kosningabaráttunni. Bjarni hefur verið duglegur að halda kosningaskrifstofunni gangandi og tekið vel á móti gestum og gangandi. Að vanda yrkir Bjarni vísur og kemst þar oft vel að orði. Einni slíkri skaut hann að mér áðan og kemur hún hér.
 
Er á verkin ekki spar,
að sér vel í lögum.
Víða kemur Valdimar
við á þessum dögum.
11. maí 2007
Skemmtileg umfjöllun um mig á spjallinu á skagafjordur.com
Inn á skagafjordur.com er spjallsvæði þar sem hægt er að spjalla um menn og málefni. Hér er ég með tengil á umfjöllun sem ber yfirheitið vinstri grænir og Framsókn í hár saman. Þar undir má finna eftirfarandi ummæli:
 
"Valdimar er arftaki Kidda sleggju holdi klæddur í framsókn, fáir hafa gert meira af því undanfarnar vikur að gagnrýna stefnu ríkisstjórnar xD og xB. Hann talar yfirleitt þvert gegn stefnu flokksins. Skyldi hann vita það sjálfur? Hann mun ganga til liðs við Frjálslynda fyrir rest eins og Kiddi"
 
Ég segi nú bara "ja hérna, verða það örlög mín"......væri gaman að sjá smá rökstuðning með þessu áður en ég söðla um :-)
11. maí 2007
Nú er talið niður í klukkustundum
Ekki er nema rúmlega 36 klukkutímar í að fyrstu tölur fari að birtast. Þetta verður mjög spennandi og mikil forréttindi fyrir mig að hafa fengið að taka þátt í þessu. Ég er fullur bjartsýni enda fengið góðar móttökur alls staðar sem ég hef farið.
 
HÉR má svo finna lokaskilaboð frá formanni Framsóknarflokksins Jóni Sigurðsyni. Jón hefur staðið sig eins og hetja þrátt fyrir að koma skyndilega inn í baráttuna. Hann hefur sýnt mikið traust og yfirvegun að ekki sé talað um afburðarþekkingu á málefnum samfélagsins.  
10. maí 2007
Orðaskak við þingmann Vinstri grænna

Greinin mín "Höfnum eignaupptöku" virðist hafa farið fyrir brjóstið á Jóni Bjarnasyni sem svarar með látum og segir mig leggjast lágt og vera með dylgjur og útúrsnúninga. Þetta er þekkt aðferð þegar fólk er komið í rökþrot að reyna að gera lítið úr andstæðing sínum. Enda kemur svo greinilega í ljós í svarinu að Jón er rökþrota og svarar ekki því sem lagt var upp með.

 

Greinin "Höfnum eignaupptöku" er hér á heimasíðuni undir Pistlar.

Svar Jóns er t.d. að finna HÉR
Svar við svari Jóns frá mér er svo hér undir pislar og heitir "Hvað hafa Vinstri grænir að fela fyrir bændum?"
 
Greinarnar allar er svo að finna á www.skessuhorn.is www.huni.is og www.skagafjordur.com
10. maí 2007
Grill og Eurovisionstemning í Borgarnesi
 Í dag klukkan 18:00 verðum við með grillveislu fyrir utan kosningaskrifstofuna að Borgarbraut 61 í Borgarnesi (Kveldúlfsgötu megin). Um kvöldið verður svo fyrsta kosningavakan þessa vikuna þegar Eurovision verður sýnt í beinni á skrifstofunni. Magnús Stefánsson mætir með gítarinn og ég mun bregða á leik með ærslabelgjum á öllum aldri.
 
Sjáumst í dag í góða veðrinu í Borgarnesi
09. maí 2007
Allt á fullu í baráttunni
Það hefur ekki gefist mikill tími til að halda heimasíðuni gangandi nú síðustu daga. Það er allt á fullu í kosningabaráttunni, farið víða fyrirtæki og heimili heimsótt. Í dag verð ég í Borgarfirðinum og í kvöld á Blönduósi en þar ætlum við að hitta unga kjósendur og spá og spjalla um þjóðmálin. Það er altaf gaman að hitta ungu kjósendurna og heyra þeirra baráttumál. Sjáumst á Blönduósi í kvöld.
07. maí 2007
Áhugaverð könnun/próf
Nemendur við félagsvísinda- og hagfræðideild Háskólans á Bifröst útbjuggu áhugaverða könnun/próf þar sem hægt er að haka við ákveðnar fullyrðingar og sjá þannig hvaða stjórnmálaflokkur rímar best við skoðanir próftaka. Ég vil benda sérstaklega á að könnun þessi er hlutlaus og unnin upp úr rannsóknarskýrslu (misserisverkefni) sem fékk hæstu einkunn á haustmisseri 2005. Nemendurnir hafa nú endurbætt könnunina, sett inn Íslandshreyfinguna ásamt því að móta könnunina eftir stefnuskrám núna fyrir Alþingiskosningarnar 2007. Ég mun setja svör mín við spurningunum inn á heimasíðuna seinna í dag þannig að lesendur síðunar geti séð hvaða rök liggja að baki mínum svörum. Könnunina má nálgast á slóðinni http://xhvad.bifrost.is/
 
02. maí 2007
Hið rétta andlit stjórnmálamanna

Nú er rétt rúmlega vika til kosninga. Pressan á stjórnmálamenn er mikil og taugarnar þandar til hins ítrasta. Það er á svona álagstímum sem hið rétta andlit stjórnmálamanna kemur ljós. Það kom mér ekkert sérstaklega á óvart að sjá hvernig Steingrímur J. brotnaði niður í sjónvarpinu í gær og datt í sitt gamla orðljóta far og byrja að niðurlægja fólk. Það er ekkert skrítið að VG vill stofna netlöggu en það kemur þeim afar illa fyrir þá að hinn almenni borgari geti farið á netið og skoðað ummæli sem fallið hafa áður og borið þau saman við það sem sagt er síðar. Það átti allavega vel við í þessu tilfelli. Hér er vísun í heimasíðu Björns Inga þar sem hann fer yfir svar Steingríms við spurningu úr sal.

01. maí 2007
1. Maí
í gegnum söguna hefur það fylgt vinstriflokkum að vera baráttusamtök verkalýðsins. Nú er önnur saga allavega á íslandi en þar eru stjórnmálaöflin á vinstri kantinum (VG og SF) orðin helstu baráttusamtök gegn atvinnu og iðnaðaruppbyggingu. Í stað þess að standa með okkur verkafólkinu þá er okkur hiklaust sagt að fara að gera "eitthvað annað".
01. maí 2007
Áhugaverður samanburður
Íslandshreyfingin fer mikinn og heldur því statt og stöðugt fram að sökkva eigi öllu Íslandi undir virkjanir. Í mogganum í gær var grein eftir Margréti Sverrisdóttur varaformann flokksins þar sem hún talar um áform "stóriðjusinna" að sökkva Þjórsárverum og nefnir Framsóknarflokkinn í því sambandi. Ekki vill nú samt betur til en að fyrr í sama blaði er fréttaumfjöllun um tillögu Jónínu Bjartmarz um að stækka friðlandið í Þjórsárverum það mikið að Þjórsárveita er útilokuð.
 
Stundum fer fólk bara hreinlega fram úr sér......
30. apríl 2007
Er ekki nóg komið?
Á þessu kjörtímabili hefur Framsóknarflokkurinn verið skotspónn heiftarlegra ádeilna og mörg miður æskileg ummæli hafa fallið af vörum andstæðinga okkar. Nú í aðdraganda kosninga hefur margt fólk komið að máli við mig og lýst furðu sinni á framkomu ýmissa aðila í garð okkar og tjáð mér þá skoðun sína að nóg sé komið. Ekki geta andstæðingar okkar þó séð að sér og ráðast hiklaust á okkar fólk og fjölskyldur þeirra á mjög óvandaðan og ógeðfeldan hátt. Nýjasta dæmið eru árásir á tengdadóttur Jónínu Bjartmarz. Allt byrjaði þetta með einræðu í Kastljósþætti frá fyrrverandi kosningastjóra Samfylkingarinnar í NA. kjördæmi (lesist Helga Seljan) þar sem lagðar voru fram órökstuddar og illa ígrundaðar dylgjur á hendur Jónínu. Framhaldið er þeim ljóst sem fylgjast með og finn ég á fólki á því er brugðið og lýsir vanþóknun sinni á fréttaflutning og þeirri atburðarrás sem hefur fylgt í kjölfarið. Ekki geta þó einstaka aðilar hætt og framkoma Össurar Skarphéðinssonar í Silfri Egils og fréttum í gær var merki um að öllum meðulum skal beitt til að reyna að koma höggi á okkar fólk. Ég ætla samt að þakka Össuri og þeim sem viðhafa álíka vinnubrögð fyrir að koma fram og sýna alþjóð sitt rétta andlit það verður að teljast heiðarlegt svona rétt fyrir kosningar.
Hér er tveir hlekkir inn á síðuna hjá Pétri Gunnarssyni þar sem hann fjallar um málið. Hér og Hér.
26. apríl 2007
Dagskráin í dag
Fundur um þjóðlendumál á Hótel Borgarnes klukkan 13:00
Opnun kosningaskrifstofu í Borgarnesi klukkan 17:30 að Borgarbraut 61. Margir frambjóðendur mæta þar.
Vísindaferð á Bifröst og kynning á Framsóknarflokknum. Þar verða Magnús Stefánsson, Herdís Á. Sæmundardóttir, Samúel Örn erlingsson, Þórir ingþórsson, Jónína Brynjólfsdóttir....og líka ég.....tralalalala :-)
 
Sjáumst í Borgarfirðinum 
26. apríl 2007
Nýr pistill
Kominn nýr pistill um Vesturland - sjá hér til hægri
 
24. apríl 2007
Á leið í fjölbrautarskólann á Sauðárkróki
Á morgun er opin stjórnmálafundur í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki. Ég mun verða þar sem fulltrúi Framsóknar. Ég hlakka til að koma norður í hinn fagra Skagafjörð og hitta það skemmtilega og kraftmikla fólk sem þar býr.
 
Sjáumst á morgun!
 
ps. endilega kíkið á nýopnaðan vef ungs framsóknarfólks www.kind.is þar er margt skemmtilegt að sjá.
24. apríl 2007
Hvanneyri, Helgavatn og Borgarnes
Ég og Magnús fóurm í gær í Borgarfjörðinn. Við byrjuðum á að fara á Hvanneyri og heimsóttum þar marga starfsmenn. Það er mikill uppgangur á Hvanneyri, starfsemin altaf að aukast og mikill kraftur í fólki. Landbúnaðarháskólinn er eitt af stoltum okkar framsóknarfólks í Borgarfirðinum. Við fórum svo upp á Helgavatn og kynntum okkur búskaparhætti þar undir góðri leiðsögn heimamanna. Að lokum komum við aðeins við í Borgarnesi og litum inn í Hyrnutorg. Við verðum svo aftur í Borgarfirðinum á fimmtudag en þá er áætlað að opna kosningaskrifstofu í Borgarnesi ásamt einhverju húllumhæi á Bifröst.
23. apríl 2007
Borgarbyggð - frambjóðendur á ferð
Í dag (mánudag) verða ég og Magnús Stefánsson á ferðinni í Borgarbyggð. Það verður gaman að hitta sveitungana og spjalla við þá um daginn og veginn......aðallega stjórnmál þó.
Minni á heimasíðu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi www.framsokn.is/nordvestur en þar er hægt að fylgjast með ferðum okkar ásamt fleiri upplýsingum um hvað er á döfinni.
23. apríl 2007
Nýr pistill
Nú er kominn nýr pistill sem heitir " Vestfirðingar!  – Framsókn stendur með ykkur ALLA leið!" Ég vil líka benda þeim sem hafa einhverjar athugasemdir eða vilja leggja eitthvað til málanna að senda mér póst en það má gera með því að smella á linkinn "hafa samband" hér að ofan.
23. apríl 2007
Kátir Skagfirðingar!
Það var mikil stemning og gleði við opnun kosningaskrifstofu á Sauðárkróki. Heimamenn troðfylltu húsið og það var greinilegur baráttuhugur í fólki.  Það er ekki ofsögum sagt um söng- og tónlistarhæfileika Skagfirðinga, en það var spilað á harmonikku og sungið dátt ásamt því að hvert tónlistaratriðið af öðru kom fram. Ungt tónlistarfólk spilaði á fiðlu, gítar og hljómsveit skipuð ungum tónlistarmönnum tróð upp. Dagur sem þessi virkar sem mikil hvatning og sýnir hversu hæfileikaríkt, duglegt og skemmtilegt fólk er í framsókn. Ég ætla bara að vona að þakið sé vel fest á Framsóknarhúsið á Sauðárkróki, ekki veitir af. 
22. apríl 2007
Gjammandi og gólandi stjórnarandstaða!
Ég var að horfa á kosningafund í Suðurkjördæmi sem sýndur var á RÚV. Það var mjög áberandi í gegnum þáttinn STANSLAUST gjamm og frammí grip stjórnarandstöðunar. Þetta er með ólíkindum að heyra fólk sem er að reyna að koma sér á framfæri að sýna ekki vott af kurteisi. Bjarni Harðarson var allavega ekki öfundsverður, en hann mátti vart opna munninn þegar fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna hrukku hreinlega af hjörunum og góluðu og æptu. Þetta er eitthvað sem fólk þarf að hafa í huga í kosningunum í vor. Það skiptir nefnilega máli að hér sé stjórnað með yfirvegun, en það sást vel í þessum þætti að hún er ekki til hjá stjórnarandstöðunni.
22. apríl 2007
Afar furðuleg "frétt" á stöð tvö í gær
"Íslendingar búsettir erlendis sjá Ísland ekki í hyllingum" var fyrirsögn í fréttum stöðvar tvö í gær. Þessi setning var höfð eftir tveimur frambjóðendum samfylkingarinnar sem staddir voru á atkvæðaveiðum í Kaupmannahöfn...........Ég verð að segja að mér féllust hendur. Eru engin takmörk fyrir því hvað íslenskir fjölmiðlar geta lagst lágt. Í þessari frétt var fullyrt að íslendingar erlendis sæu ekkert gott við að koma heim til íslands. Og heimildarmennirnir einn aðili (lesist samfylkingarmaður) búsettur erlendis og tveir frambjóðendur samfylkingarinnar. Þetta kallast óvönduð vinnubrögð í meira lagi og þeim sem unnu hana til mikillar skammar.
22. apríl 2007
Opnun kosningaskrifstofu á Sauðárkróki
Í dag, sunnudag klukkan 16:00 verður opnuð kosningaskrifstofa í Framsóknarhúsinu, Suðurgötu 3. Þar verður boðið upp á kaffi og með því eins og Skagfirðingum einum er lagið.
 
Sjáumst hress!
22. apríl 2007
Fundur á Hólmavík og heimsóknir til strandafólks

Það var gaman að koma á Strandirnar. Fundurinn á Hólmavík var skemmtilegur og gaman að spjalla við fólk um stjórnmálin. Eftir fundinn lagaði ég bílinn eftir óhappið á Ennishálsi en hélt svo inn á Drangsnes. Þar ræddi ég aðeins við okkar fólk sem er eldklárt í slaginn og fullt baráttuhug. Sama má segja um Framsóknarfólk almennt á Ströndum en ég kom heimsótti nokkra bæi í bakaleiðinni og gaf m.a. okkar margrómaða framsóknarkaffi.

22. apríl 2007
Akstur utan vega!

Það munaði litlu í dag að ég færi sama veg og Kiddi sleggja og Einar K. þegar ég missti stjórn á bílnum á Ennishálsinum á Ströndum. Var að koma niður bratta brekku sem í var mikill krapi og U beygja framundan. Ég sá fram á að ná ekki beygjunni þannig að stefnan var tekin á að reyna að fara sem beinast útaf til að velta ekki. Þegar ég var að nálgast brúnina var bíllinn kominn á það litla ferð að ég ákvað að beygja aðeins og keyra á skilti sem var í kantinum og viti menn það dugði og bíllinn stoppaði kominn með framendann aðeins yfir kantinn. Með lafandi bretti og beyglaðan framenda hélt ég áfram á Hólmavík þar sem ég náði að tjasla þessu eitthvað saman. Vonandi hangir það fram yfir kosningar.

22. apríl 2007
Fjör á sjávarréttarkvöldi ÍA

Á föstudagskvöldið fórum ég og Magnús Stefánsson á sjávarréttarkvöld hjá ÍA. Kvöldið var vel heppnað í alla staði. Maturinn var frábær og mörg góð skemmtiatriði. Liðsmenn ÍA þjónuðu til borðs og stóðu sig vel í því. Það sem stóð uppúr kvöldinu var frábært skemmtiatriði sem Freyr Eyjólfsson flutti. Meginþemað hjá Frey var að búa til baráttusöng fyrir Skagamenn þar sem hann brá sér í líki margra frægra íslenskra tónlistarmanna sem reyndu fyrir sér í að búa til lagið. Síðan var uppboð til að safna fyrir liðið þar sem boðnar voru upp alls konar minningarvörur t.d. gamlar myndir og treyjur af frægum köppum. Ein gömul skagatreyja var t.d. boðin upp á 250.000.- Það verður gaman að fylgjast með skagaliðinu í sumar og næstu ár en þeir eru með ungt og efnilegt lið. Áfram Skagamenn – ekkert stopp.

21. apríl 2007
Fótboltakvöld, Strandir, Hvammstangi, Sauðárkrókur
Í gærkvöldi fór ég á (fótbolta) sjávarréttarkvöld hjá ÍA. Núna er ég á leiðinni á Strandir með Magnúsi og Herdísi. Það er fundur á Hólmavík klukkan eitt. Ég verð svo eftir fyrir vestan en Herdís og Magnús halda áfram og funda á Hvammstanga og síðan Sauðárkróki. Læt heyra í mér aftur í nótt þegar ég kem til baka og gef skýrslu......
 
20. apríl 2007
Opnun kosningaskrifstofu á Akranesi
Sumardaginn fyrsta opnuðum við kosningaskrifstofu í Framsóknarhúsinu á Skagabraut á Akranesi. Þar mætti margt fólk og mikill baráttuandi ríkti á svæðinu. Það er mikill uppgangur á Akranesi og þar er margt að gerast. Það er gaman fyrir framsóknarfólk að koma á Akranes og finna stuðninginn við verk okkar. Framsóknarflokkurinn hefur staðið sem klettur með uppbyggingu og sókn á Akranesi og nágrenni og mun halda því áfram. Í kvöld er svo ætlunin að fara á sjávarréttaveislu ÍA á Skaganum. Nú fer sumarvertíðin að hefjast í fótboltanum og Skagamenn koma til mað að halda uppi heiðri kjördæmisins í úrvalsdeildinni. Ég vil árangur áfram - ekkert stopp hjá Skagamönnum og megi allir bikarar sem eru í boði koma heim á Akranes í ár - þar eiga þeir heima.
20. apríl 2007
Fjör á kynningardegi á Bifröst
Í gær fórum við frambjóðendur á Bifröst og kíktum á kynningardaginn. Það er hefð á Bifröst að vera með kynningu á skólanum og samfélaginu þennan dag ár hvert. Að venju var sól og blíða og hið stórbrotna umhverfi sem skólanum er búið í Norðurárdalnum naut sín til fullnustu. Það var mikið af fólki á staðnum og sérstaklega gladdi mitt heimahjarta að sjá kvenfélagið sjá um veitingarnar og baka vöfflur handa gestum. Það er nefnilega mjög mikilvægt að skólin endi ekki sem samfélag innan samfélagsins í Borgarbyggð. Það eru svona atriði sem skipta máli. Þó að gaman sé að sjá vöxtinn og uppbygginguna á Bifröst, má hún aldrei verða þannig að hún sé ekki í sátt við nærsamfélagið.
 
Ég óska Bifrsesingum til hamingju með daginn!
 
Áfram Bifröst á þessari braut - ekkert stopp 
19. apríl 2007
GLEÐILEGT FRAMSÓKNARSUMAR!
19. apríl 2007
Kyningardagur Bifröst - Kosningaskrifstofa Akranes
Í dag kíkjum við frambjóðendur á Bifröst og heilsum upp á vini og kunningja þar. Síðan förum við á Akranes en þar verður opnuð kosningaskrifstofa klukkan 16:00 í Framsóknarhúsinu við Sunnibraut.
 
Sjáumst í sumrinu á Vesturlandi!
19. apríl 2007
"Óbeisluð fegurð" og gleði í Hnífsdal
Gærkvöldið á örugglega eftir að verða mér lengi eftirminnilegt. Keppnin "óbeisluð fegurð" sem haldin var í Hnífsdal var hreint út sagt frábært skemmtun. Ég hef verið viðstaddur "hefðbundnar" fegurðarsamkeppnir en þessi var eitthvað svo mikið "fallegri". Þarna voru keppendur af báðum kynjum, á öllum aldri og af öllum stærðum og gerðum. Keppendur sópuðu að sér verðlaunum og allir fóru með eitthvað heim af þesssari keppni, þó að mest vegi örugglega að hafa skemmt sér og öðrum á uppátækinu. Margir styrktaraðilar komu að keppnini en styrkur þeirra fólst í mörgu. T.d. þá styrktu aðstandendur V-dagsins keppnina með því að gefa ókeypis ráðgjöf og styrkur 3X-stál fólst í því að gefa ráðgjöfunum ókeypis flugferð vestur......svona mætti lengi áfram telja.
 
Harðsperrur í brosvöðvunum eru afleiðing þessa frábæra kvölds en veisluhöldurum tókst svo sannarlega að kitla hláturstaugarnar hjá gestum.
 
Sigurvegari kvöldsins!!! Að sjálfsögðu voru allir sigurvegarar enda fegurð ekki staðlað hugtak. Allir fengu vinninga en til að krýna manneskju sem ber titilinn "óbeisluð fegurð 2007" þá var nafn eins keppanda dregið upp úr hatti.
 
Sigurvegari kvöldsins!!! Hin síunga og glæsilega Ásta Dóra Egilsdóttir. Ásta er á hinum afstæða sjötugsaldri. Hún hafði áður um kvöldið hreppt titilinn "uppáhalds keppandinn" en það var að mati gesta. Til hamingju Ásta. 
 
Mig langar að þakka aðstandendum og keppendum kærlega fyrir stórskemmtilegt kvöld og óska þeim til hamingju með góðan árangur í að styrkja gott málefni en ágóðinn rann til Sólstafa sem eru systursamtök Stígamóta á Vestfjörðum.
 
Takk fyrir mig og takk fyrir ógleymanlegt kvöld.
18. apríl 2007
Opnun kosningaskrifstofu á Ísafirði
Í dag miðvikudag opnum við kosningaskrifstofu á ísafirði. Skrifstofan verður staðsett í Hafnarstræti og er áætlað að opna hana klukkan 15:00. Um kvöldið er svo gert ráð fyrir að kíkja á hina stórmerkilegu fegurðarsamkeppni "Óbeisluð fegurð" en þar eru vaskir þátttakendur í göfugri keppni til styrktar Stígamótum. Keppnin hefur vakið heimsathygli enda um flott framtak að ræða. Það má segja að þetta sé eitt af nýsköpunarverkefnum á Vestfjörðum en þar er kraftmikið og duglegt fólk með mikið af hugmyndum. Ekki má heldur gleyma að þar er fagurt fólk sem lýsir sér best í því að síðast þegar ég fór vestur var önnur fegurðasamkeppni, að vísu í hefðbundnari stíl, en ekki einu sinni Reykjavík með öllu sínu fólki getur státað sig að fegurðarsamkeppnum á tveggja vikna fresti.
16. apríl 2007
Til hamingju Óli með sjúkraþjálfunarstöðina
Mig langar að óska Óla vini mínum með áfangann en hann og vinur hans eru að opna sjúkraþjálfunarstöð á Ísafirði. Það er margt jákvætt og flott að gerast fyrir vestan enda fallegur staður og kraftmikið fólk. Ekki er heldur hægt að kenna Óla og Kötu um neikvæða mannfjöldaþróun fyrir vestan en mikið fjör og margmenni er til staðar á þeirra heimili.
16. apríl 2007
Rangfærslur í ályktunum sjálfstæðismanna

Ég renndi aðeins í gegnum ályktanir sjálfstæðismanna frá landsfundinum um landbúnaðarmál. Þar kennir margra grasa. Það er tvennt sem stingur í stúf. Talað er um áframhaldandi verndun í einni málsgrein og svo að markaðslögmál eigi að gilda í annarri seinna. Þetta er skrítin framsetning og full ástæða að spyrja hvað átt sé við.

Annað er þó öllu verra en það er ályktunin um þjóðlendumál. Þar kemur fram eftirfarandi:

„... fagnar landsfundurinn þeim breytingum sem fjármálaráðherra hefur lagt til að gerðar verði á framkvæmd þjóðlendumála og að endanleg kröfugerð ríkisins í þeim málum sem nú eru í vinnslu taki mið af því.“

Þetta tel ég vera afar ósmekklega orðað og er einfaldlega mikil rangfærsla. Núna er komin kröfugerð í Þingeyjasýslum þar sem farið er fram með ýtrustu kröfur.  Jón Sigurðsson og Guðni Ágústsson hafa staðið í mikilli baráttu við fjármálaráðherra um að verklagi yrði breytt. Það gekk illa enda sjálfstæðismenn oft erfiðir í taumi og þráast lengi við þegar um brýn verkefni er að ræða. Nú koma þeir fram á landsfundinum og hæla Árna Matt í hástert fyrir vasklega framgöngu. Þetta er ekki Sjálfstæðisflokknum til sóma.

16. apríl 2007
Næsti Landbúnaðarráðherra annað hvort Framsókn eða VG
Það er mjög einföld skýring á þessu. Það eru 100% líkur að mínu mati að næsta ríkisstjórn innihaldi annað hvort Framsókn eða VG.  Þá eru 100% líkur á því að næsti landbúnaðarráðherra verði annað hvort úr Framsókn eða VG. Ekki þarf að fjölyrða hver er landbúnaðarráðherraefni Framsóknar. Það eru tveir í spilunum fyrir VG annað hvort Steingrímur J eða Jón Bjarna. Ætla má að Steingrími J sé ætlað annað hvort utanríkisráðherra- eða forsætisráðherraembættið og þá situr landbúnaðurin uppi með Jón Bjarnason.
 
Landbúnaðurinn hefur tvo skýra valkosti ......og svo geta menn deilt um hvor er betri.
16. apríl 2007
Pylsubandalagið
Nú er komið nafn á ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstir græningja. Það er bara eina vandamálið að þessir flokkar tveir ná aldrei meirihluta á Alþingi. Til þess þarf þriðja flokkinn sem væntanlega yrði Framsókn (án þess að mér hugnist það sérstaklega). Það er spurning hvað samstarf Framsóknar, Sf og Vg ætti að heita og væri gaman að heyra hugmyndir þess efnis. Annars er vaninn þegar verið er að versla pylsur að kaupa brauðið með og fá sér eina með öllu. Án brauðsins yrði ansi subbulegt að fá sér eina með öllu en það er kannski samlíking hvernig ríkisstjórnarsamstarf Sf og VG yrði án Framsóknar.
16. apríl 2007
Tví..þrí...fjórsaga í sömu setningunni

Stjórnarandstöðuflokkarnir eru óþreyttir að benda á óstjórn í efnahagsmálum og hafa búið til mörg stór slagorð sem lýsa því "ófremdarástandi sem þar ríkir". Aftur á móti eru þeir líka óþreyttir í að koma með stór loforð í að moka fé í velferðarkerfið og bæta alla þjónustu sem tilheyrir ríkinu. Til að rökstyðja hvernig á að standa undir öllum loforðunum benda þeir á sterka stöðu ríkiskassans og að það sé kominn tími til að moka úr honum einhverjum hundruðum miljarða í velferðarþjónustuna.

Er ekki kominn tími til að rökstyðja hvort atriðið er rétt

14. apríl 2007
Borgarfjörður - Húnavatnssýslur
Verð á þeytingi í þessum tveimur sýslum í dag.
 
Endilega hringið ef þið viljið ná á mig. GSM: 8-205-205
14. apríl 2007
Samfylkingin og föstudagurinn 13.

Þar sem mikið var að gera hjá mér í gær náði ég ekki að fylgjast mjög ítarlega með hvað var að gerast í kringum landsfund Samfylkingarinnar. Það sem ég þó sá gaf mér vísbendingar um að landsfundir þess ágæta stjórnmálaflokks verða valdar aðrar dagsetningar en föstudagurinn 13. í framtíðinni. 

Fyrst kom Össur í hádegisviðtalinu og með miklum sannfæringarkrafti talaði hann um að mannsaldursreynsla sín í stjórnmálum og yfirburðaþekking sín á að lesa úr skoðanakönnunum sýndi að allt væri á uppleið. Össur sýndi svo með skemtilegri handahreyfingu til að leggja áherslu á orð sín hvernig skoðanakannanir væru á uppleið....... 6 klst. seinna er birt könnun Gallup þar sem staðreyndin var á öfugan veg.....Óheppin... 

Á landsfundinn mættu svo skeleggir kvenskörungar frá Norðurlöndunum, þær Helle Thorning-Smith, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins í Danmörku og Mona Sahlin, nýkjörinn formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð til að styðja stöllu sína   Ingibjörgu Sólrúnu í komandi verkefni. Til merkis um þessa  „föstudagsins 13 óheppni „ í kringum landsfundinn, þá lýsti Sahlin því yfir í ræðu á fundinum að til að koma jafnaðarmannastjórn að völdum, þyrfti konu. Þetta vekur ákveðna furðu að heyra því að þessar stöllur þrjár, Sahlin, Ingibjörg og Helle Thorning-Smith eru allar í stjórnarandstöðu.   Þannig að þetta módel er ekki alveg að virka...Óheppin...

Síðan sá ég Kastljósið í gær yfir kvöldmatnum og verð að segja að þar átti Kristrún Heimisdóttir alveg hræðilegan dag. Ekki ætla ég að vera að velta henni upp úr hvernig til tókst í gær...kannski einhver yfirspenna eftir að koma af miklum baráttufundi...eða bara...Óheppin...

 

Annars bendi ég á greinina mína hér á síðunni frá í gær „Föstudagurinn 13.“ En þar útskýrist vel af hverju fólk ætti að hugsa sig tvisvar um að treysta á lukkuna á þessum degi. Sérstaklega kannski þegar um er að ræða heilu stjórnmálaflokkana mánuði fyrir kosningar J

13. apríl 2007
Verð á ferð í Borgarfirðnum í dag!
Í dag ætla ég og Herdís að þvælast eitthvað um Borgarfjörðinn. Seinnipartinn verðum við í Hyrnutorgi og spjöllum við gesti og gangandi. Sjáumst þar!
13. apríl 2007
Föstudagurinn 13!!!!
Í dag er föstudagurinn 13 apríl. Það má segja að Samfylkingin sé að storka örlögunum með því að halda landsfundinn sinn í dag og þar að auki byrjar fundurinn klukkan 13:00
 
Annars er ég sjálfur fæddur föstudaginn 13. og hefur það reynst mér ágætlega og tel ég þetta vera happadag þegar föstudag ber uppá 13. dag mánaðarins. Því mun þessi tímasetning ekki reynast Samfylkingunni happadrjúg, það er ekki til nein afgangsheppni á þessum degi, hún er öll hjá mér.
13. apríl 2007
Kosningabarátta á fullum krafti
Það má segja að kosningabaráttan hafi farið á fullt núna eftir páskana. Það er sama hvaða miðla maður opnar, sér eða heyrir í þá eru frambjóðendur í kynningu eða flokkarnir með auglýsingar.
 
Annars segi ég: Það er óþarfi að vera tvístígandi í því hvað á að kjósa. Það er bara einn Framsóknarflokkur.........X - B
10. apríl 2007
Skagafjörður og Húnavatnssýslur
Í dag fer ég í Skagafjörðinn og kíki á fund um þjóðlendumál. Fundurinn verður haldinn á Löngumýri. Eftir fundinn verður brunað yfir í Húnavatnssýslur og spjallað við heimamenn þar. Í aðdraganda þessa ferðalags hef ég rifjað upp þjóðlendumálin en grunnurinn afðþekkingu minni í þeim málum var lagður í lögfræðináminu á Bifröst þar sem ein af prófspurningum á lokaprófinu í eigna- og veðrétti var m.a. um þjóðlendur. Ég veit að fundurin á Löngumýri verður áhugaverður enda liggja Skagfirðingar ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
07. apríl 2007
Glæsilegt fyrirtæki á Ísafirði
Ég og Herdís Á. Sæmundardóttir flugum til Ísafjarðar á þriðjudaginn og komum aftur á fimmtudag. Við heimsóttum fjöldan allan af fyrirtækjum á Ísafirði og nágrannabæjum ásamt því að heyra í fjöldanum öllum af félögum okkar fyrir vestan. Ég er núna að skrifa pistil sem fjallar ítarlega um feriðina vestur en langar hér að benda á fyrirtækið 3X Stál sem staðsett er á Ísafirði. Fyrirtækið er sannkallað nýsköðunarfyrirtæki og hannar og smíðar allskonar hátæknibúnað sem ætlað er matvælaiðnaði. Ég hefði getað eytt mörgum dögum í þessu fyrirtæki til að skoða og spekúlera í því sem þar er gert. Hérna er tengill inn á heimasíðuna þeirra og bendi ég sérstaklega á myndir af framleiðslulínunum þeirra sem hægt er að sjá með því að smella á tenglana sem eru vinstra megin. undir kaflaheitinu Solutions. Þess má geta að 3X Stál eru handhafar íslensku útflutningsverðlaunanna sem sýnir vel að hér er um að ræða framsækið og öflugt fyrirtæki.
04. apríl 2007
Nú skapast svigrúm fyrir uppbyggingu atvinnulífs á Vestfjörðum og NV-landi
Nú í kjölfar neikvæðrar niðurstöðu í íbúakosningum í Hafnarfirði hefur skapast svigrúm til að setja fjármuni í önnur verkefni án þess að ofþenja hagkerfið.  Þessi verkefni verða að sjálfsögðu á Vestfjörðum og á Norðvesturlandi en þar hefur ríkt neikvæður hagvöxtur og neikvæð byggðaþróun um árabil.
Nú er bara að ganga í þessi mál af fullum þunga, það er það eina sem dugar. Framsóknarflokknum er best treystandi til að koma hjólum atvinnulífsins af stað, það hefur sagan sýnt.
04. apríl 2007
Þrír nýjir pistlar líta dagsins ljós
Jæja ég skrifaði þrjá pistla í gærkvöldi. Einn birtist á vef Skessuhorns, einn á vef Bæjarins Besta á Ísafirði og svo einn sem aðeins er hér á heimasíðunni. (Sjá hér til hægri)
 
Vek athygli á heimasíðum meðframbjóðenda minna
 
03. apríl 2007
Á leiðinni á Ísafjörð

Ég og Herdís Á. Sæmundardóttir erum að fara fljúga til Ísafjarðar núna í morgunsárið og verðum fyrir vestan fram á fimmtudag. Verð í netsambandi og skrifa um það sem á daga okkar drífur þar.

31. mars 2007
Dagskráin að þéttast
Nú er kosningabaráttan að komast á fullt skrið. Var í Stykkishólmi á miðvikudag, Bifröst á fimmtudag, Á fundi hjá ferðamálasamtökum Vesturlands á föstudag og í dag laugardag fer ég upp í Reykholt. Nú ætla ég að fara að koma þessu inn í dagbókina hjá mér þannig að þar verður hægt að fylgjast með hvað á daga mína drífur. Vonandi hef ég tíma í kvöld eða nótt að setja vikuna inn. Býst við að reyna að koma síðan daglega inn færslum í dagbókina. (undantekning á þeirri reglu er þegar ég hef ekki netsamband)
Vonandi kem ég líka inn einhversstaðar dagskrá, þannig að lesendur getir séð hvenær ég verð á heimaslóðum þeirra og geta haft samband og spjallað um þjóðmálin.....það er svo gaman :-)
Ætlunin er einnig að setja inn möguleika á að lesendur geti sett athugasemdir inn á forsíðuna við færslur þar. Annars er ég í einhverju veseni með vírus á síðunni t.d. var ég kominn með u.þ.b. 4000 athugasemdir við dagbókafærslunar (flestar einhverjar spam vitleysur) Sjáum hvað setur. 
Annars langar mig að segja það að ég nýt hverrar mínútu þessa dagana. Þessi lífsreynsla sem framboðsmálin veita manni er ómetanleg. Allt fólkið sem ég hitti og að kynnast öllum þessum fjölbreyttu byggðarlögum í kjördæminu er eitthvað sem ég mun búa að alla ævi. Ég held því fram og fullyrði að reynslan og þekkingin sem ég er að öðlast þessa daganna er á við meistaranám úr krefjandi námi.
31. mars 2007
Vísnaþáttur
Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum sendi mér þessar vísur, Magnús er að velta fyrir sér hvernig forsætisráðherra Steingrímur J. yrði og hvernig STOP stefnan myndi virka á efnahag landsmanna.

Illa verður eflaust liðinn
elsku kallinn.
Efnahagur allur sviðinn
eins og skallinn.

Magnús veltir einnig fyrir sér stöðu Ingibjargar Sólrúnar.

Reyndist vel í Reykjavík
rosa fjöldi hana kaus.
Finnst nú vera furðu lík
og flugvél, sem er bensínlaus.

29. mars 2007
Nýr pistill

Kominn er nýr pistill inn á síðuna sem heitir "Mikilvægi Framsóknarflokksins" Nú hef ég farið víða um kjördæmið og hitt mikið af fólki. Fólk er yfirleitt mjög jákvætt í garð Framsóknar og skynjar mikilvægi flokksins í litrófi stjórnmálanna. Flokkurinn hefur staðið sig vel í velferðarmálum og miklar umbætur hafa átt sér stað í þeim málaflokkum. Þær mestu í íslandssögunni á síðustu árum.

29. mars 2007
VG vilja í ríkisstjórn til að stöðva framþróun og framsókn
Vinstri Grænir hafa búið til barmmerki sem á stendur Ríkisstjórn með ZERO framsókn og vísa þar með skilmerkilega í eigin atvinnustefnu og framtíðarsýn á efnahagslífið. Framtíðarsýn VG byggist upp á STOPP stefnu sem hamlar framsækni og framsókn í íslensku atvinnulífi. Það er bara flott hjá þeim að opinbera þetta og koma til dyranna eins og þau eru klædd. Þeirra hugmyndir um atvinnuuppbyggingu hafa engu skilað og munu ekki gera það þó að þau komist í ríkisstjórn. Vísa hér í hádegisviðtalið á Stöð tvö við Smára Geirsson (stilla tímann á 30:30).... Ekkert, ekki neitt, núll og nix, ZERO. Þetta kom einnig fram á fundi í Stykkishólmi (stilla tímann á 01:17:30)  Ekkert, alls ekki neitt, ZERO.....eða jú í lokin hjá Jóni kemur sjóstangaveiði.....og er þá líklega verið að vísa í öll hátæknistörfin og hámenntastörfin sem þeir boða og skapast þá líklega í kringum sjóstangaveiði. Er ekki kominn tími að VG fari að svara einhverjum spurningum um atvinnustefnu og efnahagsmál.
29. mars 2007
Sjónvarpsfundurinn í Stykkishólmi
Sjónvarpsfundurinn á Stöð tvö var áhugaverður og gaman að sjá áherslurnar hjá flokkunum. Magnús stefánsson stóð sig glæsilega og bar af á fundinum. Útsendingu af fundinum má sjá HÉR
28. mars 2007
Sameiginlegur stjórnmálafundur á Stöð 2
Klukkan 19:40 í kvöld sýnir Stöð 2 frá sameiginlegum fundi stjórnmálaflokkanna í Norðvesturkjördæmi. Magnús Stefánsson verður þar í forsvari fyrir Framsókn. 
27. mars 2007
Það sem stjórnarandstaðan talar EKKI um!

Hvað skyldi það vera sem stjórnarandstaðan talar ekki um? Miðað við hversu mikill tími hefur farið í málþóf og ef skoðaðir eru ræðutímar allmargra stjórnarandstöðuþingmanna þá mætti halda að fátt sé ónefnt þar. En svo er nú alls ekki.

 

27. mars 2007
Til hamingju landsbyggðin!
Ferðasjóður íþróttafélaganna er nú orðinn að veruleika. Þetta eru sannkallaðar gleðifréttir, sérstaklega fyrir landsbyggðina. Hlutverk framsóknarfólks er stór í þessu máli og hafa margir af þingmönnum/konum okkar átt frumkvæði að því að koma þessu á. Forsaga ferðasjóðs íþróttafélaganna er sú að á þingi árið 2000 flutti Hjálmar Árnason fyrst þingsályktunartillögu um stofnun sjóðsins ásamt Ísólfi Gylfa Pálmasyni og svo aftur árið 2003 ásamt þeim Birki Jóni Jónssyni, Dagnýju Jónsdóttur, Magnúsi Stefánssyni, Guðjóni Hjörleifssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks og Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylkingar.
Framhaldið var að menntamálanefnd í sameiningu tók málið upp og flutti svipaða þingsályktun og áður hafði komið fram og samþykkti Alþingi hana árið 2006. Nú er ferðasjóðurinn orðinn að veruleika og á eftir að styrkjast og eflast og veita gott liðsinni ungmennahreyfingunni til styrks og framdráttar.
27. mars 2007
Tímamót hjá Framsóknarflokknum

Það er mál manna að flokksþing Framsóknarflokksins í byrjun mánaðarins hafi markað ákveðin tímamót. Andinn á flokksþinginu var áberandi góður og mikil samstaða og samhugur ríkti á meðal fólks. Flokksmenn voru mjög samstíga og bera ályktanir flokksþingsins skýr merki grundvallarhugsjónar Framsóknarflokksins sem byggð er á samvinnuhugsjóninni og hollustu við land og þjóð. Ánægjulegt var að sjá eldri flokksmenn fylgjast með og var greinilegt á svip þeirra og viðbrögðum að þeir voru sáttir með gang mála. Framsóknarflokkurinn er svo sannarlega að ná vopnum sínum aftur og mætir sterkari en nokkru sinni til leiks í kosningabaráttuna.

27. mars 2007
Heimasíður meðframbjóðenda
Bloggið verður altaf stærri og stærri hluti af kosningabaráttu. Stjórnmálamenn og áugamenn um þjóðmálin stofna heimasíður í gríð og erg til að koma skoðunum sínum á framfæri og kynna sig. Meðframbjóðendur mínir í Norðvesturkjördæmi Magnús Stefánsson og Herdís Á. Sæmundardóttir eru þar engin undantekning.
Heimasíður þeirra má skoða hér:
 
Einnig langar mig að kynna síðuna www.valdisig.blog.is en þar er að finna hugleiðingar og skoðanir mínar sem eru í meiri bloggstíl.
27. mars 2007
Skjóta fyrst spyrja svo!

Aðförin að Siv Friðleifsdóttur hefur verið með ólíkindum nú upp á síðkastið. Aðförin að persónu ráðherrans hefur einkennst af aðdróttunum um spillingu, óheiðarleika og óheilindi.

Í fréttunum á RÚV í gær kom svo hið rétta í ljós . Siv gerði ekkert rangt og eldri borgarar  viðurkenndu mistök sín og báðu „kurteislega“ afsökunar.

Nú verður gaman að sjá hvort þeir sem harðast hafa farið fram í þessum málum og m.a. heimtað afsökunarbeiðni og afsögn ráðherrans biðji Siv afsökunar og segi sig þá af framboðslistum í kjölfarið.

Ég held að samfylkingin þurfi allavega að hugsa vel sinn gang eftir að hafa birt auglýsingu á bls.11 í Fréttablaðinu þann 26. Mars. Þetta var ómerkileg og ómálefnaleg auglýsing sem aðeins byggði á ósannindum og hræsni.

27. mars 2007
Jæja, mættur aftur
Nú er ég búinn að klára þau verkefni sem ég tók mér fyrir hendur og helli mér á kaf í baráttuna. Það eru spennandi tímar framundan og mikið tilhlökkunarefni að ferðast um kjördæmið og hitta fullt af fólki og spjalla og spekúlera. 
13. mars 2007
Viðsnúningur, hringsnúningur, öfugsnúningur, útúrsnúningur........

Stundum er erfitt að átta sig á stjórnarandstöðunni. Allt kaffibandalagið vildi auðlindaákvæði tengt sjávarauðlindinni inn í stjórnarskrá. Síðan kemur tillaga að auðlindarákvæði sem nær til allra auðlinda og þá eru allir á móti því. Hvernig ætla þeir að vinna saman eftir kosningar.....sameinast um að leggja fram mál á mánudegi og sameinast um að fella það á þriðjudegi.....Eitt mega þau þó eiga að það er að þau eru samstíga núna, bara samstíga í vitleysunni. Annars á samfylkingin eftir að samþykkja þetta fljótlega, það var nefnilega að koma skoðanakönnun sem sýndi að mikill meirihluti þjóðarinar vill fá þetta ákvæði inn í stjórnarskrána.

09. mars 2006
Skemmtileg ferð á Strandir
Það var ánægjuleg og lærdómsrík ferð sem ég og Herdís áttum á Strandirnar. Við hittum á margt fólk og spjölluðum um þjóðmálin. Á miðvikudaginn var opin fundur um byggðamál og seinna um kvöldið funduðum við með félagsmönnum og skeggræddum stöðuna og framhaldið. Á fimmtudaginn skrapp ég út á Drangsnes og hitti fólk þar. Á leiðini til baka kíkti ég á nokkra sveitabæi. Hlakka til að fara seinna í vor þegar sauðburður er byrjaður og sjá betur þann myndarlega búskap sem stundaður er á Ströndunum.
07. mars 2007
Framsóknarfólk á leiðinni á Strandir
Núna í dag verður haldinn opinn stjórnmálafundur á Hólmavík. Ég og Herdís Á. Sæmundardóttir munum verða í forsvari og ræða við heimafólk um þjóðmál og stjórnmál. Ég hlakka til að hitta Strandafólk og veit að umræðurnar verða skemmtilegar og fjörugar. Þið sem ætlið að ná sambandi við mig í dag eða á morgun.....sorry.....verð líklega fyrir utan þjónustusvæði. Skammarlegt að allir íslendingar sitji ekki við sama borð þegar kemur að fjarskiptum, það þarf að laga.
06. mars 2007
Fyrsti sameiginlegi stjórnmálafundurinn í dag
í dag byrjaði kosningabaráttan formlega í Norðvesturkjördæmi. Nemendur á félagsfræðibraut í Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi boðuðu til fundar og þar mættu fulltrúar frá öllum flokkum sem nú eiga sæti á Alþingi. Ég fékk það ánægjulega hlutverk að vera í forsvari fyrir framsókn. Nemendurnir mættu vel undirbúnir á fundinn og spurðu skemmtilegra og krefjandi spurninga. Það er gaman þegar ung fólk sýnir stjórnmálunum áhuga, ég þakka þeim fyrir vel skipulagðan fund og skemmtilegar umræður.
06. mars 2007
Jón Sigurðsson í Silfri Egils
Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins kom fram í Silfri Egils á sunnudaginn. Framsaga Jóns í þættinum var glæsileg og honum til mikillar fyrirmyndar. Styrkur Jóns eykst með degi hverjum og landinn fær með auknum mæli að kynnast afburðarþekkingu hans á íslensku samfélagi og þjóðlífi. Þáttinn má sjá HÉR
06. mars 2007
Flokksþing Framsóknarflokksins

Nú um síðastliðna helgi var flokksþing Framsóknarflokksins haldið. Á þinginu ríkti eftirtektarverð samstaða og greinilegt að þær breytingar sem orðið hafa á forystu flokksins hafa skilað góðum árangri. Þingfulltrúar samþykktu metnaðarfullar ályktanir og málefnastaða flokksins er sterkari sem fyrr og verður gaman að vinna að þeim málefnum í kosningabaráttunni. Greinilegur vilji kom fram á þinginu að styrkja stoðir velferðarkerfisins á komandi kjörtímabili. Ég fékk það skemmtilega hlutverk að leiða menntamálanefnd á þinginu. Metnaðarfullar og framsýnar tillögur komu fram í nefndinni og voru samþykktirnar glæsilegar. Ég vek athygli á kafla sem fjallar um íþrótta, tómstunda- og æskulýðsmál en ár koma fram nýjungar sem skipta allt íþrótta- og félagsstarf á landinu gríðarlega miklu máli. Ályktanir flokksþingsins má finna HÉR

05. mars 2007
Vísnaþáttur
Hinn mikli sveitahöfðingi Magnús frá Sveinsstöðum sendi mér þessa vísu sem hann samdi í kjölfar kjördæmisþings framsóknar í NV-kjördæmi þegar framboðslistinn okkar var kynntur.
 
Fylgi okkar vex og vex
vonir gerast stórar.
Nú í fyrstu sætum sex
sitja konur fjórar.
04. mars 2007
Vísnaþáttur

Vísnagleði hefur ætíð fylgt landanum. Þessi hefð er afar skemmtileg og ekki síst vegna þess að í vísum er oft hægt að ná fram aðalatriðum úr umræðu á mjög snaggaralegan hátt. Í stjórnmálum og kringum þau koma oft upp skemmtileg atvik og aðstæður sem vísnaglaðir grípa á lofti og yrkja um. Til að hleypa smá meira lífi í síðuna þá ætla ég að birta vísur hér á forsíðunni þegar mér berast slíkar.

 

Fyrsta vísan sem ég birti samdi sá mikli höfðingi Bjarni Valtýr Guðjónsson í kjölfar ræðu minnar á flokksþingi Framsóknar 2. Mars 2007.  Bjarni er einn af perlum okkar samfélags, mikill félagsmaður og góður vinur. Aldrei hef ég kynnst nokkrum manni með jafn mikla þjónustulund og Bjarna. Á uppeldisárum mínum vann hann hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, bæði í matvörudeildinni og svo í byggingavörudeildinni. Ef einhvern vantaði eitthvað þar, þá var hægt að stóla á að Bjarni leysti málið á besta mögulega tíma.

 

Vísan er svo hljóðandi:

 

Vesturlandsins Valdimar

Vekur andans heppni.

Skerpir brandinn skýrt með svar

Skal ei stranda í keppni

04. mars 2007
Framsókn...í raun eini jafnréttisflokkurinn

Á síðustu árum hefur verið mikið fjallað um jafnréttismál og þá oft út frá þeirri staðreynd að hallað hefur á konur á ýmsum sviðum.  Athyglisvert er þó að einungis einn stjórnmálaflokkur á Alþingi, Framsóknarflokkurinn hefur svarað kalli tímans hvað þetta varðar. Ráðherralista framsóknar skipa þrjár konur og þrír karlar. Þingflokk framsóknar skipa fimm konur og sex karlar. Framboðslista framsóknar fyrir alþingiskosningarnar 2007 skipa 63 konur og 63 karlar. Þrjár konur og þrír karlar leiða lista framsóknar fyrir alþingiskosningarnar 2007. Í fyrstu fjórum sætunum fyrir alþingiskosningarnar 2007 eru 13 konur og 11 karlar. Svona mætti lengi telja og niðurstaðan ætíð fullt jafnrétti.

Þessi staðreynd vekur sérstaka athygli fyrir þær sakir að forsvarsmenn annarra lista en framsóknar standa á torgum þessa dagana, mála allt bleikt og hrópa hátt um það hversu mikinn sess jafnréttismál skipa í stefnu þeirra.

Það hljómar sem merkingarlaust blaður í mínum eyrum....eyðið frekar tíma og orku ykkar í að taka til heima hjá ykkur.......

27. febrúar 2007
Nýr pistill
Vek athygli á nýjum pistli sem var að líta dagsins ljós. Umræðuefnið er Bændur og neytendur þar sem fjallað er um þá afbökuðu umræðu sem átt hefur sér stað um landbúnaðarmál upp á síðkastið
27. febrúar 2007
Nýjar raddir
Síðdegisútvarpið á rás 2 er með dagskrárlið sem heitir „nýjar raddir“ en þar flytja frambjóðendur sem eru ofarlega á listum flokkanna pistla. Höfundarnir hafa það sammerkt að hafa ekki átt fast sæti á Alþingi.
Framsóknarflokkurinn á að sjálfsögðu sína fulltrúa í þessum hópi enda búin að vera mikil endurnýjun á framboðslistum flokksins og nú sem endranær mikið af nýjum og ferskum röddum í framsókn.

Á fimmtudaginn síðasta flutti ég pistil og má lesa hann í heild sinni undir pislum - Nýjar raddir 1 hér á síðunni.

28. febrúar 2007
Og en gefur hún....Bifröstin
Margir forkólfar framsóknarflokksins hafa komið í gegnum menntasetrið á Bifröst í gegnum tíðina. Í byrjun árs 2004 var stofnað framsóknarfélag á Bifröst sem er það fyrsta í sögunni á þeim stað þótt ótrúlegt sé. Framsóknarfélagið Bifröst hefur frá stofnun staðið fyrir fjölda viðburða og sett mark sitt á þjóðmálaumræðu í skólanum. Ákveðið var við stofnun félagsins að formenn sætu einungis eitt ár við stjórnvölinn og er Jónína Brynjólfsdóttir núverandi formaður því fjórði formaður félagsins. Þeir sem áður sátu við stjórnvölinn voru Valdimar Sigurjónsson 2005-2006, Þórir Ingþórsson 2004-2005 og Vigdís Hauksdóttir frá stofnun 24. febrúar 2004 til hausts. Sérstaka athygli vekur framganga formanna félagssins nú í aðdraganda kosninga en Jónína Brynjólfsdóttir skipar 4. sæti á framboðslista framsóknar í Reykjavík-norður,  Þórir Ingþórson skipar 4. sæti í Reykjavík-suður og ég 3. sæti í Norðvestur. 
Hið öfluga starf sem á sér stað á Bifröst er því greinilega að skila sér og er ég mjög stoltur yfir því að hafa tekið þátt í því frá upphafi.  
19. desember 2006
Nýr pistill og nýtt skipulag á síðunni
Jæja það hefur nýr pistill litið dagsins ljós, hann fjallar um tillitsleysi í umferðinni. Síðan hef ég ákveðið þar sem um pólitíska síðu er um að ræða að hafa dagbókina framvegis á þann hátt að inn í hana set ég aðeins það sem er að gerast á pólitíska sviðinu. Býst ég því við að hafa vikurnar í heilu lagi og týna það helsta saman í stað þess að skrifa á hverjum degi.
27. febrúar 2007
Náði settu markiði...þriðja sætið í höfn
Áður en kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi kom saman gaf Kristinn H. Gunnarsson út yfirlýsingu að hann tæki ekki sæti á framboðslista flokksins. Kjördæmisþingið samþykkti svo samhljóða tillögu kjördæmisstjórnar þar sem ég skipa þriðja sætið. Á þinginu ríkti mikil samstaða og gefur það okkur sem skipum forystusveitina aukinn kraft til góðra verka.
Ég þakka flokksfélögum í kjördæminu stuðninginn og hlakka til að takast á við komandi verkefni.
18. nóvember 2006
Þakkir
Nú eru úrslitin ljós í prófkjöri framsóknarmana í Norðvesturkjördæmi. Ég lenti í fjórða sæti með rúm 61% atkvæða sem er framar mínum björtustu vonum. Þessar vikur sem prófkjörið hefur staðið yfir hafa verið mjög skemmtilegar og viðburðaríkar. Mig langar að þakka öllum þeim sem hafa stutt við bakið á mér og þátttakendum í prófkjörinu fyrir góðan og dyggan stuðning. Nú er komið að næsta skrefi sem er að koma þeim áherslum sem ég kynnti fyrir kjósendum inn í stefnuskrá Framsóknarflokksins fyrir alþingiskosningarnar í vor. Ég vil þakka meðframbjóðendum fyrir drengilega og heiðarlega baráttu og hlakka til að vinna með þeim að góðum málum, framsóknarflokknum og þjóðinni allri til heilla.
18. nóvember 2006
Lokatölur úr prófkjörinu
Hér að neðan gefur að líta lokatölur í prófkjöri framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.
 

Lokatölur:

1.

1.-2.

1.-3.

1.-4.

1.-5.

1. Magnús Stefánsson

883

1.079

1.207

1.293

1.362

2. Herdís Á. Sæmundardóttir

41

979

1.155

1.273

1.380

3. Kristinn H. Gunnarsson

672

773

879

932

986

4. Valdimar Sigurjónsson

9

99

732

1.024

1.235

5. Inga Ósk Jónsdóttir

3

118

320

830

1.172

17. nóvember 2006
Talning að hefjast
Nú er komið að því! Talningin að hefjast og fyrstu tölur eiga að koma klukkan 22:00. Ég ætla að vera með kosningavöku í Hreðavatnsskála sem hefst klukkan 21:30. Allir eru velkomnir. Nú er bara að krossleggja fingur (sem eyðileggur fingrasetninguna) Sjáumst í kvöld.
17. nóvember 2006
Hvar er hægt að nálgast nýjustu tölur.
Fyrir kosningakvöldið langar mig að setja linkana á fréttavefi kjördæmisins hérna fyrir neðan þannig að allir geti fylgst með.
Fyrstu tölur birtast á  www.krokur.is/framsokn klukkan 22:00 en gaman er að fylgjast með umræðunni á eftirfarandi miðlum.

www.bb.is 

www.strandir.is 

www.huni.is   

08. nóvember 2006
Póstkosningin í fullum gangi!
Nú eru liðnir 5 dagar af póstkosningunni. Ég vil endilega biðja þá sem ekki hafa fengið kjörgögn eða hafa einhverjar spurningar varðandi kosninguna eða vilja frekari upplýsingar um mig endilega að hafa samband. Síminn hjá mér er 8-205-205. Einnig er að finna upplýsingar um kosninguna og okkur frambjóðendur á slóðinni http://www.krokur.is/framsokn/index/Profkjor.html Ég hvet alla Framsóknarfélaga að nýta kosningarétt sinn og sýna þannig áþreifanlega hversu mikill kraftur og áhugi býr í félagsmönnum hérna í kjördæminu.
05. nóvember 2006
Póstkosningin hafin!
Nú eru kjörseðlarnir komnir inn á öll framsóknarheimili í kjördæminu. Nú er bara að muna að setja Valdimar Sigurjónsson í 3. sætið.
05. nóvember 2006
Nýjar dagbókarfærslur

Vikan komin inn, er samt að spá í að færa daglega inn en ekki safna upp heilli viku og setja svo inn. Vona að ég geti staðið við það.

02. nóvember 2006
Baráttukveðjur frá Ísafirði
Jæja! þá er fyrsti sameiginlegi framboðsfundurinn búinn. Fundurinn var skemmtilegur og fróðlegur. Ég ætla að vera á Ísafirði og nágrannabyggðum á morgun og spjalla við fólk. Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina að standa í þessum framboðsmálum. Ótrúlega gefandi að hitta svona margt gott fólk og spjalla við það. Ég sé ekki eftir einni einustu mínutu.
02. nóvember 2006
Greinar eftir mig á fréttavefjum kjördæmisins

Tvær greinar sem ég skrifaði og birtust á landshlutafréttavefjunum eru komnar í pistlana. Neðst í báðum pistlum eru svo tenglar beint inn á viðkomandi grein.

31. október 2006
Fleiri fréttavefir úr kjördæminu

Hef fengið gríðarlega góðar undirtektir við síðustu frétt sem ég setti inn á vefinn en þar safnaði ég saman fréttavefum kjördæmisins. Fékk ábendingu um nokkra til viðbótar og set þá jafnóðum inn í linkasafnið. Endilega bendið mér á ef það vantar fleiri.

30. október 2006
Fréttavefir kjördæmisins!

Norðvestur kjördæmi er víðfermt. Mörg byggðarlög eru sameinuð í þessu stóra kjördæmi. Til þess að hafa puttann á púlsinum er því nauðsynlegt að kynna sér vel þá fréttavefi sem haldið er úti. Hér eftir ætla ég að telja þá vefi upp sem ég heimsæki reglulega, eða oft á dag þessa dagana til að kynna mér hvað er í gangi á hverjum stað.

 

www.skessuhorn.is  Fréttavefur Vesturlands

www.bb.is  eða Bæjarins besta sér um Vestfirskar fréttir

www.strandir.is  Skemmtilegur og göldróttur fréttavefur Strandamanna

www.huni.is  Húnahornið úr Húnavatnssýslunum

www.skagafjordur.com  er heimaslóð Skagfirðingsins og mín líka um þessar mundir.
www.patreksfjordur.is Fréttavefur Tíðis frá Patró og Vesturbyggð.
www.thingeyri.is Þingeyrarvefurinn
www.arnfirdingur.is er vefur Arnfirðingafélagsins. Þar eru m.a. fréttir að Bíldudalsgrænum Baunum. Allt er vænt sem vel er grænt.

 

Ég hvet alla til að kynna sér þessa metnaðarfullu fréttavefi og kynna sér málefni byggðarlaganna. Þarna gefst okkur frambjóðendunum einnig kostur að kynna okkur og málefni okkar. Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinum en ef svo er þá endilega látið mig vita með að senda mér póst.

28. október 2006
Nýjar myndir komnar inn
Var að setja inn myndir frá aðalfundi Framsóknarfélagsins Bifröst 2006 og frá kynningarfundi framboðsins hjá mér sem var haldinn síðasta fimmtudag. Ég vil í leiðinni þakka samnemanda mínum á Bifröst, vinkonu og flokkssystur henni Bryndísi Bjarnarson formanni LFK. fyrir að taka að sér fundarstjórn á kynningarfundinum og myndatökuna á aðalfundinum.
26. október 2006
Kjörskráin að loka!!!
Í dag lokar kjörskráin fyrir póstkosninguna. Þeir sem eru með lögheimili í Norðvestur kjördæmi geta skráð sig í flokkinn og haft þannig áhrif á uppröðun frambjóðenda. Það er hægt að skrá sig á www.framsokn.is (smella á "ganga í flokkinn" og skráð inn upplýsingar um sig. Ég hvet alla til þess að skrá sig og hafa þannig áhrif á þróun mála í þjóðfélagsmálunum. Ég bíð mig fram í þriðja sæti á listanum. Upplýsingar um frambjóðendur er að finna inn á http://www.krokur.is/framsokn/index/Profkjor.html 
Einnig geta þeir sem hafa áhuga á inngöngu sent mér póst undir linknum "hafa samband" eða hringja í síma 8205205. Ég er meira en reiðubúinn að spjalla við fólk um hversvegna það ætti að skrá sig og útskýra hvað ég stend fyrir og hvers vegna það ætti að kjósa mig í þriðja sætið. 
 
26. október 2006
Kynningarfundur í kvöld fimmtudagskvöld
Í kvöld klukkan 20:00 ætla ég að halda kynningarfund í Kringlunni á Bifröst. Á fundinum geri ég gein fyrir þeim málefnum sem ég stend fyrir og hvernig ég ætla að koma þeim í framkvæmd. Á eftir mun ég taka við fyrirspurnum og ræða málin.
 
Sjáumst klukkan 20:00 í Kringlunni
 
05. október 2006
Velkomin á heimasíðuna mína

Kæri lesandi!

Velkominn á heimasíðuna mína valdimar.is.  Aðalástæða þess að ég set upp þessa heimasíðu er að kynna mig og málefni mín í aðdraganda prófkjörs Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ég hef boðið mig fram í þriðja sæti á þeim lista og vonast eftir því að hljóta stuðning flokksmanna minna til að skipa það sæti. Af þessari ástæðu er aðalefni síðunnar tengt þjóðmálunum á einn og annan hátt.

Allir pistlarnir eiga að vera stuttir og gagnorðir enda er það í mínum anda að koma efni frá mér í sem stystu máli þar sem aðalatriðin eru ekki falin á milli þess sem minna skiptir máli. Vona ég að þú lesandi góður eigir eftir að njóta þess sem hér er skrifað og heimsækja síðuna reglulega og sjá hvað ég hef fram að færa.
kær kveðja
Valdi

 

Pistlar
11. maí 2007
Atvinna er grundvöllur menntunar.
Framsóknarflokkurinn fór í ríkisstjórn árið 1995 með loforð um að ráðast gegn atvinnuleysi og skapa
Lesa pistil
10. maí 2007
Hvað hafa Vinstri grænir að fela fyrir bændum?
Það þarf manndóm til að segja skoðun sína umbúðalaust, sérstaklega ef áætla má að hún sé andstæð rík
Lesa pistil
09. maí 2007
HÖFNUM EIGNAUPPTÖKU!
Eitt atriði hefur ekki fengið mikla umfjöllun en það er umræðan um eignarhald á jörðum utan þjóðlend
Lesa pistil
09. maí 2007
Á að nota Lánasjóð íslenskra námsmanna í þróun byggðamála?
Ég vil halda landinu í byggð og að leitað verði allra leiða til að svo megi verða. Það þarf hins veg
Lesa pistil